Komið þið nú sæl!!
Er ekki komin tími til að ég bloggi nú aðeins og segja aðeins frá mér.
Það er búið að vera geggjað mikið að gera hjá mér og það verður alveg fram að prófi sem ég fer í og svo er eitt verkefna skil svo eftir próf. Ég verð búin í skólanum 12. des og þá verður sko hrunið í það og haldið uppá það að jólafrí til 5. jan.
Ég er búin að vera svo heppin að hafa kynnst honum Óla mínum því hann er búinn að vera duglegur að hjálpa mér að gera þessi verkefni og fara yfir stafsetningar villurnar hjá mér. Enda er ég líka mjög góð við hann í staðinn
.Ég er líka alltaf að vinna svo aðra hverja helgi og tek stundum aukavaktir. Eins og ég var að segja það er nóg að gera hjá mér. Ég er líka dottinn inná facebookið og það er ekkert grín, ég get verið þarna tímunum saman en ég er líka búin að finna fullt af gömlum vinum og ættingjum ekki er það verra. Ég skráði bara Óla og sagði svo honum það að hann væri kominn með síðu. Er ég stjórnsöm eða hvað?
Við fórum í kreppubíó hjá ÍAV og sáum reykjavík-rotterdam, hún var nokkuð góð á minn mælikvarða.
Ég var búin að setja mér stórt markmið og það er að fara í sund á hverjum degi og það er ekki alveg að ganga upp hjá mér eins og er en þetta er að koma ég fór tildæmis í dag þegar ég var búin með þetta verkefni sem ég er búin að skila á netinu. Svo að borða hollan mat og ekkert nammi á virkum dögum, það var búið að ganga svo vel hjá mér þegar ég var í ræktinni en núna er ég að fara til fjandans með matinn. Það er bara að byrja aftur ekki gefast upp.
Það fer nú að styttast í jólin og það verða fáar jólagjafir í ár. Því miður og ég vona að þið skiljið það sem alltaf hafa fengið frá okkur. Því Óli minn er eina fyrirvinnan á heimilnu þó að ég vinni aðrahverja helgi það er ekki nægur peningur sem kemur inn. Það þarf víst að borga þessa reikninga og það gengur fyrir. Kannski hef ég efni á því að senda jólakort. En þetta kemur bara allt í ljós. Ég ætla hætta að vera svona neikvæð og horfa á björtu hliðarnar á lífinu.
Ég lofa að það líður ekki svona langur tími næst.
Best að fara að koma sér í koju.
Guð geymi ykkur og góða nótt.
Kveðja Snædís.